Þórisstaðir og Þórisstaðir 2 - Deiliskipulag
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum 9. júlí 2026 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Þórisstaða og Þórisstaða II, í samræmi við 1. mgr. 31. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að falla frá gerð lýsingar á skipulagsverkefninu þar sem allar meginforsendur deiliskipulagsins liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 3. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn að falla frá ítarlegri kynningu tillögunnar, þar sem allar meginforsendur liggja fyrir í aðalskipulagi sbr. 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagið nær til 84 ha svæðis fyrir frístundabyggð og smávirkjun (100 kw). Svæðið er skilgreint sem frístundabyggð F52 og landbúnaðarland í flokki ll í og sem óbyggt svæði í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020-2032. Aðkoma að svæðinu er frá Dragavegi (520). Afmörkun svæðisins nær til frístundabyggðarinnar og legu fallpípu smávirkjunar milli stöðvarhúss, inntaks og miðlínu árfarvegar. Lóðirnar að Þórisstöðum II skiptast í tvö svæði og er vestari hlutinn nefndur Kúhalli og eystri hlutinn Hjallholt.
Kynningartími tillögunnar er frá 22. júlí – 2. september 2026 í skipulagsgátt, hér.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemd við tillögurnar á kynningartíma. Athugasemdum skal skilað inn rafrænt í Skipulagsgátt. Ef óskað er nánari kynningar á tillögunum skal bóka tíma hjá skipulagsfulltrúa.
Umhverfis- og skipulagsdeild.