Þjónustukönnun 60 ára og eldri
Í júlí 2024 gaf Hvalfjarðarsveit út upplýsingabækling fyrir eldri borgara í sveitarfélaginu sem var sendur á öll heimili í Hvalfjarðarsveit. Hægt er að nálgast upplýsingabæklinginn á skrifstofu sveitarfélagsins, einnig er hann aðgengilegur í
rafrænu formi inni á heimasíðu sveitarfélagsins,
www.hvalfjardarsveit.is.
Í upplýsingabæklingnum má finna fjölbreyttar upplýsingar um heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, frístundastarf og aðra þjónustu sem eldri borgarar geta nýtt sér. Þar er jafnframt að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að sækja um þjónustu og hvert á að hafa samband.
Þjónustukönnun
Hvalfjarðarsveit stendur nú fyrir þjónustukönnun meðal íbúa 60 ára og eldri í þeim tilgangi að fá fram fjölbreytt sjónarmið um hvernig megi bæta og þróa þjónustuna enn frekar í framtíðinni. Svör eru nafnlaus og meðhöndluð sem trúnaðarmál.
Þú getur svarað könnuninni með því að:
Skanna QR-kóðann hér að neðan, þaðan ferðu inn á íbúagátt sveitarfélagsins, og skráir þig inn með rafrænum skilríkjum.
Hringja í síma 433 8500 og svara könnunni símleiðis, á eftirfarandi tíma: mánudaginn 16.febrúar 2026 kl. 10 til 12.
Koma í stjórnsýsluhúsið, Innrimel 3, 301 Akranes, á eftirfarandi tíma: mánudaginn 16.febrúar 2026 kl. 10 til 12.
Svara spurningarlistanum á opnu húsi í Miðgarði miðvikudaginn 25. febrúar 2026.
Við hlökkum til að heyra frá þér,
Velferðar- og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar
