Fara í efni

Þjóðarátak á laugardaginn - Plokk

Stóri plokkdagurinn er haldinn á Degi umhverfisins laugardaginn 25. apríl nk.  Íbúar Hvalfjarðarsveitar eru hvattir til þátttöku en plokkun er kjörið tækifæri til að sameina útiveru og hreyfingu og um leið að sýna umhverfinu og samfélaginu kærleik í verki.  Plokk er tilvalin tilbreyting í samkomubanni þar sem auðvelt er að virða 2 metra regluna.  Að plokka fegrar umhverfið en víða er náttúran illa sett af plasti og ýmiskonar rusli eftir stormasaman vetur.

Minnum á gámana á  gámasvæðinu við innkeyrslu í Melahverfi.