Taktu þátt í að einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga
Frétt af vef Innviðaráðuneytis.
Stjórnvöld óska eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga. Öll ráðuneyti í Stjórnarráðinu koma að verkefninu með tengingu við málaflokka sína en innviðaráðuneytið heldur utan um verkefnið. Allir eiga kost á því að senda inn tillögur og ábendingar í vefkönnun sem kynnt er í samráðsgátt stjórnvalda en frestur er til og með 10. mars nk.
Óskað er eftir ábendingum og úrbótatillögum um verkefni og regluverk sveitarfélaga og fram koma í yfirliti yfir lögmælt verkefni sveitarfélaga, sem innviðaráðuneytið gefur út árlega. Um er að ræða verkefni í ríflega 60 lögum sem heyra undir 11 ráðuneyti. Greina á hvort og þá hvar lagðar eru óþarfar eða íþyngjandi kvaðir á sveitarfélög og/eða einstaklinga, fyrirtæki eða félagasamtök sem leita þurfa til sveitarfélaga í störfum sínum eða einkalífi. Ekki er spurt um reglur sem sveitarfélögin setja sér sjálf um framkvæmd verkefnanna.
Mikilvægt er að fá tillögur að úrbótum til að skilja hvernig megi bæta stöðuna. Þó er rétt að hafa það í huga að einföldun regluverks er alltaf með þeim fyrirvara að ekki verði gengið á rétt íbúa til þjónustu. Markmiðið er því öðru fremur að sveitarfélög fái aukinn sveigjanleika til að sinna betur þeim lögbundnu verkefnum og þjónustu sem þeim ber að veita. Afraksturinn verði einfaldari stjórnsýsla, betri þjónusta og ánægðari íbúar.
Innviðaráðuneytið mun taka saman allar ábendingar og tillögur og koma til viðkomandi ráðuneyta sem taka afstöðu til þeirra á sínum forsendum og vinna áfram fýsilegar breytingatillögur.
Verkefnið er í takt við áherslur ríkisstjórnarinnar um hagræðingu innan stjórnsýslunnar og að einfalda regluverk í þágu atvinnulífs og almennings.