Fara í efni

Syndum – landsátak í sundi 1. – 30. nóvember

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. til 30. nóvember 2022. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.
Endilega kynnið ykkur málið betur inn á www.syndum.is, þar er hægt að skrá sig til leiks.
Sundlaugin í Heiðarborg er opin mánudaga - fimmtudaga kl. 16:00-21:00 og laugardaga frá kl. 10:00-15:00.