Fara í efni

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skorar á dómsmálaráðherra að falla frá áformunum um breytingu á lögregluembættum

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti samhljóða á fundi sínum þann 22.október 2026 að koma á framfæri mótmælum við áformum dómsmálaráðherra um fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Fyrirhuguð breyting felur í sér umfangsmikla miðstýringu sem ógnar staðbundinni þekkingu, nálægð við íbúa og mikilvægum tengslum lögreglu við sveitarfélög og viðbragðsaðila.

Það vekur sérstaka furðu að Vesturland skuli samkvæmt tillögunni sameinast Norðausturlandi í eitt víðfeðmt lögregluumdæmi. Sveitarstjórn Hvalfjarðasveitar telur óásættanlegt að færa yfirstjórn löggæslu svo langt frá nærsamfélaginu án þess að sýnt hafi verið fram á skýran ávinning fyrir þjónustu og öryggi íbúa.

Jafnframt skortir sannfærandi rök fyrir þeirri grundvallarákvörðun að fækka embættunum í þrjú. Ef markmiðið er aukin miðstýring og stærri stjórnsýslueiningar vaknar sú spurning hvers vegna þrjú embætti séu talin heppilegri en eitt landsdekkandi embætti. Slík ákvörðun verður að byggjast á faglegri þarfagreiningu og skýrum þjónustumarkmiðum, ekki stærð stjórnsýslueininga einni saman.

Í Hvalfjarðarsveit er umfangsmikil iðnaðar- og atvinnustarfsemi, meðal annars á Grundartanga, auk Hvalfjarðarganga, þjóðvegar 1 og víðfeðmra dreifbýlissvæða. Grundartangahöfn er ein af stærri inn- og útflutningshöfnum landsins og horfur á aukinni skipaumferð kalla á öfluga löggæslu, tollgæslu og viðbúnað. Þessar aðstæður gera ríkar kröfur til staðbundinnar þekkingar, samhæfingar og skjótra viðbragða.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar gerir alvarlegar athugasemdir við að svo róttækar breytingar séu lagðar fram án fullnægjandi greiningar á áhrifum þeirra á mönnun, þjónustu, viðbragðsgetu og ákvarðanatöku í einstökum byggðarlögum. Þá er óásættanlegt að ráðast í slíka uppstokkun á grunnþjónustu ríkisins án raunverulegs samráðs við sveitarfélögin sem breytingarnar snerta.

Verði niðurstaðan engu að síður sú að fækka lögregluembættum í þrjú krefst sveitarstjórn þess að fyrirhuguð umdæmamörk verði endurskoðuð. Sérstaklega verði metið hvort Hvalfjarðarsveit og önnur sveitarfélög á sunnanverðu Vesturlandi eigi fremur heima innan umdæmis höfuðborgarsvæðisins. Landfræðileg nálægð, samgöngutengingar og þjónustusókn mæla eindregið með því að sá kostur verði skoðaður. Óásættanlegt er að útiloka slíka umdæmaskipan án sjálfstæðs mats á þjónustulegum og öryggislegum forsendum.

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar vekur athygli á að forsenda vandaðrar lagasetningar byggir á að beitt sé verkfærum um vandaðan undurbúning og vill minna á eftirfarandi leiðbeiningar:

https://www.stjornarradid.is/verkefni/log-og-rettur/lagasetning/

Þá vekur sveitarstjórn athygli á nýju greiningarverkfæri við lagasetningu, Byggðalinsu, sem nauðsynlegt er að beita við jafn umfangsmiklar breytingar á lögum sem snerta ma landsbyggðina með jafn afgerandi hætti og það frumvarp sem hér um ræðir. https://www.stjornarradid.is/verkefni/log-og-rettur/lagasetning/

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar skorar á dómsmálaráðherra að falla frá áformunum í núverandi mynd. Öryggi íbúa og atvinnulífs verður ekki tryggt með miðstýringu og stækkun stjórnsýslueininga, heldur með öflugri löggæslu, staðbundinni ábyrgð og skjótum viðbrögðum.