Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar óskar eftir að póstnúmer 301 verði auðkennt Hvalfjarðarsveit
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á síðasta fundi sínum sem haldinn var fimmtudaginn 13. ágúst sl. að óska formlega eftir því við Byggðastofnun að ritun póstnúmers 301 verði breytt úr „301 Akranes“ í „301 Hvalfjarðarsveit“. Með breytingunni yrði póstnúmerið sjálft áfram 301 og engin breyting yrði á fyrirkomulagi póstþjónustu. Breytingin snýr eingöngu að því staðarheiti sem tengt er póstnúmerinu og birtist meðal annars í skráningum, heimilisföngum og opinberum gögnum.
Sveitarstjórn telur að heitið Hvalfjarðarsveit endurspegli bæði landfræðilega og stjórnsýslulega skýrar staðsetningu þeirra íbúa, fasteigna, fyrirtækja og stofnana innan sveitarfélagsins sem bera póstnúmerið 301. Í dag er staðan sú að þótt póstnúmerið 301 tilheyri Hvalfjarðarsveit er það ritað „301 Akranes“. Það getur gefið ranga mynd af staðsetningu og sveitarfélagstengingu þeirra heimila og starfsemi sem þar er að finna.
Sveitarstjórn telur eðlilegt að opinber auðkenning póstnúmersins endurspegli sveitarfélagið sjálft og stuðli þannig að skýrari staðarvitund og sterkari auðkenningu Hvalfjarðarsveitar.
Í samþykkt sveitarstjórnar er sérstaklega bent á að Byggðastofnun hefur sjálf í opinberri svæðaskiptingu auðkennt Akranes með póstnúmerinu 300 en Hvalfjarðarsveit með póstnúmerinu 301. Að mati sveitarstjórnar styður það enn frekar við að eðlilegt sé að ritun póstnúmersins verði „301 Hvalfjarðarsveit“.
Einnig er vísað til fordæmis frá árinu 2024 þegar Byggðastofnun samþykkti breytingu á ritun póstnúmers 276 úr „276 Mosfellsbær“ í „276 Kjós“. Þar var með sambærilegum hætti tekið mið af landfræðilegri og staðbundinni auðkenningu svæðisins.
Mikilvægt er að árétta að sveitarfélagið óskar ekki eftir nýju póstnúmeri og breytingin hefur ekki að markmiði að breyta dreifingu eða annarri póstþjónustu.
Sveitarstjóra hefur verið falið að senda Byggðastofnun formlegt erindi um málið.