Fara í efni

Sundleikfimi í Hvalfjarðarsveit

Sundleikfimi fyrir 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit, byrjar þriðjudaginn 5. október nk. í Heiðarborg og verður alla þriðjudaga og fimmtudaga, frá kl. 10:20-11:00. Því miður er ekki hægt að bjóða upp á mat í hádeginu.

Sigurður Sigurðsson verður með sundleikfimina í vetur.

Það þarf að skrá sig í sundleikfimina á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma  433-8500 eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is.