Fara í efni

Sundlaugin í Heiðarborg

Aukinn opnunartími sundlaugar í vetrarfríi Heiðarskóla.

Á morgun fimmtudaginn 15. október og föstudaginn 16. október verður sundlaugin í Heiðarborg  opin frá kl. 09:00 til 13:00 auk venjulegs opnunartíma, mánudaga-fimmtudaga frá kl. 16:00-21:00 og laugardaga frá kl. 10:00-15:00.  Þreksalur og íþróttasalur eru lokaðir.

Fjöldi sundlaugargesta hverju sinni eru 20 manns á klukkutíma, börn fædd 2015 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Munum að virða tveggja metra regluna eins og mögulegt er.

Sýkingavarnir eru ein mikilvægasta forvörnin gegn COVID-19. Athugið að gestir mega ekki koma í sund ef þeir:

  • Eru í sóttkví.
  • Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku).
  • Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.