Fara í efni

Rekstraraðili óskast - Sundlaugin að Hlöðum

Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir aðila til að reka sundlaugina að Hlöðum sumarið 2024.

Rekstraraðili skal skv. nánara samkomulagi annast:
Alla umsjón og ábyrgð á starfsemi sundlaugarinnar í júní, júlí og ágúst.
Allt starfsmannahald, baðvörslu, afgreiðslu, þrif, auglýsingar, innkaup á rekstrarvörum, t.d. hreinlætisvörum s.s. klór og annað sem rekstrinum tengist.

Rekstraraðili skal ábyrgjast að starfsfólk er annast sundlaugarvörslu hafi lokið námskeiðinu Skyndihjálp og björgun fyrir starfsfólk sundstaða og geti uppfyllt skilyrði um reglur og öryggi á sundstöðum samkvæmt reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum nr. 814/2010.
Æskilegt er að starfsfólk hafi náð 20 ára aldri. 

Umsóknum um Rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum 2024“ skal skila fyrir miðvikudaginn 24. janúar nk. á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is

Umsóknum skal fylgja samantekt um umsækjanda m.a. fyrri störf, reynslu af rekstri og starfsmannahaldi.

Nánari upplýsingar veitir frístunda- og menningarfulltrúi í síma 433-8500 eða á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is