Fara í efni

Sundabraut - kynningarfundir

Vegagerðin í samvinnu við Reykjavíkurborg, vinnur að undirbúningi Sundabrautar frá Sæbraut að Kjalarnesi. Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur fyrir alla ferðamáta, dreifa umferð og bæta tengingar við og innan höfuðborgarsvæðisins, stytta akstursleiðir og ferðatíma og minnka þannig útblástur og mengun. Áætlaður framkvæmdatími er 2026-2031. Framkvæmdin verður boðin út sem samvinnuverkefni.

Miðvikudaginn 11. október klukkan 19:30 verður haldinn kynningarfundur  í Tónbergi, tónleikasal Tónlistarskólans á Akranesi.
Fimmtudaginn 12. október kl. 18:00-19:15 verður haldinn kynningarfundur í sal Framhaldsskólans í Mosfellsbæ, Bjarkarholti 35.

Á fundunum munu fulltrúar Vegagerðarinnar og verkfræðistofunnar EFLU kynna fyrirhugaða framkvæmd ásamt áherslum í komandi umhverfismati. Til skoðunar eru valkostir á legu Sundabrautar auk tenginga við byggð og atvinnustarfsemi.

Frekari upplýsingar er að finna á SKIPULAGSGATT.IS.

Opið er fyrir umsagnir og athugasemdir til 19. október 2023.

Frekari upplýsingar um Sundabrautarverkefnið er að finna á skipulagsgátt Skipulagsstofnunar en opið er fyrir umsagnir og athugasemdir til 19. október 2023. Sjá hér: