Fara í efni

Sumarstörf í Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða í eftirfarandi sumarstörf sumarið 2019.

 

•Umsjónarmaður Vinnuskóla. Um er að ræða starf frá 20. maí til 20. ágúst. Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.

•Flokkstjóri Vinnuskóla. Um er að ræða starf frá 3. júní til 15. ágúst. Umsækjendur skulu vera 18 ára eða eldri.

 

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl nk. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vef Hvalfjarðarsveitar. Upplýsingar um störfin gefur Ása Líndal  félagsmála- og frístundafulltrúi í síma 433-8500 eða á netfangið felagsmal@hvalfjardarsveit.is