Fara í efni

Sumarstarf hjá Hvalfjarðarsveit

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða í eftirfarandi sumarstarf sumarið 2023.

  • Umsjónarmaður Vinnuskóla.
    Um er að ræða starf frá 24. maí til 17. ágúst.
    Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri.

Vinnuskólinn er bæði vinna og skóli, félagslega skapandi vinnustaður, með kennslu í almennri vinnuskólavinnu og skýrar reglur varðandi vinnuumhverfi.
Vinnuskólinn starfar við öll almenn verkefni sem lúta að umhirðu og snyrtingu sveitarfélagsins.

Umsóknarfrestur er framlengdur til og með 18. maí nk. Umsóknareyðublöð eru aðgengileg á vef Hvalfjarðarsveitar. Upplýsingar um störfin gefur Ása Líndal frístunda – og menningarfulltrúi í síma 433-8500 eða á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is