Fara í efni

Sumarstarfsfólk óskast í sundlaug að Hlöðum

Hvalfjarðarsveit óskar eftir að ráða þrjá starfsmenn í sundlaugina að Hlöðum í sumar. Æskilegt er að starfsmenn hafi náð 20 ára aldri. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Starfið felur í sér allan daglegan rekstur t.d. öryggisgæslu, þrif, uppgjör og þjónustu við gesti sundlaugarinnar. Starfsfólk þarf að fara á námskeið í Skyndihjálp og björgun. Unnið er í vaktavinnu á virkum dögum og um helgar. Vinnutímabilið er júní - ágúst 2024.

Umsóknarfrestur er til og með 28. apríl nk.

Upplýsingar um starfið gefur Ása Líndal frístundafulltrúi í síma 433 8500 eða á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is 

Umsóknir skal senda á hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is