Fara í efni

Sumarleyfi sveitarstjórnar og lokun skrifstofu Hvalfjarðarsveitar

Sveitarstjórn hefur samþykkt að skrifstofa Hvalfjarðarsveitar verði lokuð frá og með 17. júlí til og með 28. júlí nk. vegna sumarleyfa starfsfólks. Sveitarstjórn samþykkti jafnframt að sveitarstjórnarfundur sem vera ætti þann 26. júlí nk. falli niður vegna sumarleyfis sveitarstjórnar. Fyrsti fundur sveitarstjórnar að afloknu sumarleyfi verður haldinn þann 9. ágúst nk.