Fara í efni

Sumarleyfi sveitarstjórnar og lokun skrifstofu Hvalfjarðarsveitar

Næsti fundur sveitarstjórnar verður haldinn þriðjudaginn 13. júlí nk. og er það síðasti fundur fyrir sumarleyfi sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn hefur samþykkt að sveitarstjórnarfundur sem vera ætti þann 27. júlí nk. falli niður vegna sumarleyfis sveitarstjórnar.

Fyrsti fundur sveitarstjórnar að afloknu sumarleyfi verður haldinn þann 10. ágúst nk.

Sveitarstjórn hefur samþykkt að skrifstofa Hvalfjarðarsveitar verði lokuð frá og með 18. júlí til og með 29. júlí nk. vegna sumarleyfa starfsfólks.