Fara í efni

Sumarleyfi sveitarstjórnar og lokun skrifstofu Hvalfjarðarsveitar

Sveitarstjórn hefur samþykkt að skrifstofa Hvalfjarðarsveitar verði lokuð frá og með 20. júlí til og með 31. júlí nk. vegna sumarleyfa starfsfólks.  Sveitarstjórn samþykkti jafnframt að sveitarstjórnarfundur sem vera ætti þann 28. júlí nk. falli niður vegna sumarleyfis sveitarstjórnar.  Fyrsti fundur sveitarstjórnar að afloknu sumarleyfi verður haldinn þann 11. ágúst nk.  Næsti sveitarstjórnarfundur er þriðjudaginn 14. júlí nk. og er það síðasti fundur fyrir sumarleyfi sveitarstjórnar.