Fara í efni

Styrkir til náms, verkfæra- eða tækjakaupa

Þjónusturáð Vesturlands auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna náms og verkfæra- eða tækjakaupa á grundvelli 27. greinar laga um málefni fatlaðs fólks. Styrkirnir eru ætlaðir fötluðu fólki sem á lögheimili á Vesturlandi, er með varanlega örorku og hefur náð 18 ára aldri.

Umsóknir skulu berast til félagsþjónustu Akraneskaupstaðar, félagsþjónustu Borgarbyggðar eða Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga fyrir 21. mars n.k. Hægt er að sækja um á rafrænu eyðublaði sem er aðgengilegt hér

Umsækjendum er bent á að skoða úthlutunarreglur Þjónustusvæðis Vesturlands vegna styrkumsókna. Sé óskað eftir nánari upplýsingum þá er hægt að senda tölvupóst á netfangið velferd@akranes.is. 

 

Þjónusturáð Vesturlands í málefnum fatlaðra.