Fara í efni

Styrkir til atvinnumála kvenna – opið fyrir umsóknir

Vinnumálastofnun/félags-og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir styrki til atvinnumála kvenna árið 2023 lausa til umsóknar.
Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni eru kr. 40.000.000 og er hámarksstyrkur kr. 4.000.000

Skilyrði er að verkefnið/hugmyndin falli að eftirfarandi skilyrðum.

    • Verkefnið sé í meirihluta eigu konu/kvenna (51%) og stjórnað af konu.
    • Verkefnið feli í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
    • Verkefnið feli í sér atvinnusköpun til frambúðar.
    • Viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
    • Veittir eru styrkir til gerðar viðskiptaáætlunar (600.000), ásamt styrkjum til markaðssetningar og vöruþróunar að hámarki 4.000.000.Umsóknarfrestur um lán er frá 1. febrúar til og með 28. febrúar 2023 og skal sækja um rafrænt á heimasíðunni www.atvinnumalkvenna.is

 Á heimasíðu verkefnisins má finna nánari upplýsingar um reglur og skilyrði sem þarf að uppfylla.Hægt er að bóka viðtal á heimasíðunni hjá verkefnastjóra sem gefur nánari upplýsingar.

Þær sem fá samþykktan styrk til gerðar viðskiptaáætlunar munu taka þátt í fyrirtækjasmiðju. Keppt verður um verðlaun fyrir bestu viðskiptahugmyndina en dómnefnd mun meta kynningar þátttakenda.

 Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu SSV.is