Fara í efni

Stóri plokkdagurinn er 24. apríl 2021

Plokk á Íslandi er hópur einstaklinga sem bera virðingu fyrir umhverfinu og hafa það sem áhugamál að fara um illa hirt svæði og þrífa þar upp plast, pappa og annað rusl sem fallið hefur til frá íbúum, framkvæmdum eða þungaflutningum innan marka sveitarfélaga, á girðingum og í skurðum á víðavangi.

Hópurinn á sitt eigið svæði á Facebook og telja meðlimir þess tæplega 7000 manns. Þar deila meðlimir sigrum og áskorunum í umhverfismálum og þar hvetja meðlimir hvor aðra til dáða og birta myndir af rusli sem tekið hefur verið úr náttúrunni og fært á viðeigandi stofnanir.
Plokk á Íslandi árlega fyrir Stóra Plokkdeginum í lok apríl og hefur gert það frá árinu 2018. Mörg hundruð stórir ruslapokar skila sér á rétta staði og furðulegustu hlutir finnast í náttúrunni.

PLOKKUM Í SAMKOMUBANNI

  • Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
  • Einstaklingsmiðað
  • Hver á sínum hraða
  • Hver ræður sínum tíma
  • Frábært fyrir umhverfið
  • Fegrar nærsamfélagið
  • Öðrum góð fyrirmynd

GÓÐ PLOKK RÁÐ

  •  Finna sér svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt.
  •  Hvetja aðra til að vera með
  •  Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng.
  •  Klæða sig eftir aðstæðum.
  •  Koma afrakstrinum á endurvinnslustöð eða í öruggar tunnur eða gáma sem ekki fjúka eða fýkur uppúr.
  •  Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera.
  •  Munum að ALLT plokk skiptir máli. Þó þú takir bara einn tóman plast poka uppúr jörðinni á bílastæði við stórmarkað eða einnota hanska úr rjóðri eða runna þá ertu að gera gera gagn og það skiptir máli !