Fara í efni

Stóri Plokkdagurinn 26. apríl 2026

Stóri plokkdagurinn verður nk. sunnudag, 26. apríl. Dagurinn var fyrst haldinn 2018 og er samfélagsverkefni þar sem allir geta látið gott af sér leiða. Þegar veturinn hefur kvatt okkur og við förum inn í sumarið viljum við hafa hreint og snyrtilegt í kringum okkur. Alls konar rusl kemur í ljós sem mikilvægt er að fjarlægja.

Það er Rótarýhreyfingin á Íslandi sem skipuleggur daginn, hér má sjá Facebook síðu Plokkdagsins.

Þetta er árlegur viðburður í þágu samfélagsins – margar hendur vinna létt verk!

*Hægt er að nálgast hanska og poka í anddyri stjórnsýsluhússins að Innrimel 3, frá kl. 10-13 á plokkdaginn. Opin kerra verður á staðnum til að skila af sér góðu plokki. 

HVAÐ ÞARF ÉG?

Glæra plastpoka - ágætt er að hafa tvo poka, setja plastið í einn og allt annað í hinn.
Snæri eða bensli til að loka plastpokunum svo ekkert fjúki úr þeim þegar búið er að fylla þá.
Plokktangir eru ágætar, ekki nauðsynlegar.

HVERNIG ERUM VIÐ ÚTBÚIN
Klæðum okkur eftir aðstæðum. Hanskar eru ákjósanlegir. Öryggisvesti eru ákjósanleg en skylda ef við erum að plokka meðfram vegum eða við götur.

Umhverfis-, skipulags-, náttúruverndar- og landbúnaðarnefnd  hvetur íbúa Hvalfjarðarsveitar, félagasamtök og gesti til að taka þátt og sameina t.d. góða og heilsusamlega útiveru og plokkið.