Fara í efni

Störf í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg

Starfsfólk óskast til starfa við íþróttamiðstöðina Heiðarborg frá 14. ágúst nk. til 9. júní 2024.

Störfin eru eftirfarandi:

75% staða, vinnutími er frá kl. 08:00-14:00 alla virka daga. Um er að ræða tvö störf.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með íþróttahúsi
  • Öryggisgæsla við sundlaug
  • Aðstoð við nemendur/gesti
  • Þrif

Hæfniskröfur:

  • Hafa náð 18 ára aldri
  • Standast hæfnispróf sundstaða
  • Þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

Umsóknarfrestur er til 13. ágúst 2022

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal Hinriksdóttir í síma 433-8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á https://www.hvalfjardarsveit.is/is/stjornsysla/eydublod/umsokn-um-atvinnu. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.