Fara í efni

Störf í íþróttamiðstöðinni Heiðarborg

Starfsmenn óskast til starfa við íþróttamiðstöðina Heiðarborg frá 8. ágúst nk. til 9. júní 2023.

Störfin eru eftirfarandi:

75% staða, vinnutími er frá kl. 08:00-14:00 alla virka daga. Um er að ræða tvö störf.

71% staða, vinnutími er frá kl. 15:45-21:15 mánudaga til fimmtudaga og á laugardögum frá kl. 09:45-15:15. Starfið hentar vel með námi. Til greina kemur að tveir aðilar skipti með sér starfinu.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með íþróttahúsi
  • Öryggisgæsla við sundlaug
  • Aðstoð við nemendur/gesti
  • Þrif

Hæfniskröfur:

  • Hafa náð 18 ára aldri
  • Standast hæfnispróf sundstaða
  • Þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af sambærilegu starfi er kostur

Umsóknarfrestur er til 2. ágúst 2022

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal Hinriksdóttir í síma 433-8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á https://www.hvalfjardarsveit.is/is/stjornsysla/eydublod/umsokn-um-atvinnu. Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf.