Fara í efni

Stofnfundur NÝVEST

Stofnfundur Nýsköpunarnets Vesturlands fer fram í Breið nýsköpunar og þróunarsetri að Bárugötu 8-10 á Akranesi miðvikudaginn 6. apríl og hefst fundurinn kl.15:00.

Auk hefðbundinnar dagskrár stofnfundar mun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla, iðnaðar og nýsköpunarráðherra ávarpa fundinn og þeir Bergur Benediktsson og Árni Þór Árnason munu kynna starfsemi Breiðar líftæknismiðju og starfsemi Fab-Lab á Vesturlandi. Að lokum kynnir Rut Ragnarsdóttir nýja heimasíðu Nývest.

Nánari upplýsingar má sjá hér.