Startup Landið – opið fyrir umsóknir
18. ágúst 2026
Opið er fyrir umsóknir í viðskiptahraðalinn Startup Landið sem haldinn verður 24. september til 5. nóvember 2026.
Hraðallinn er ætlaður einstaklingum og teymum með nýsköpunarhugmyndir á landsbyggðinni sem vilja þróa þær áfram með markvissri leiðsögn, fræðslu og stuðningi frá reynslumiklum leiðbeinendum og sérfræðingum úr atvinnulífinu.
Umsóknarfrestur er til 1. september nk. og nánari upplýsingar má finna á startuplandid.is.
Startup Landið er samstarfsverkefni landshlutasamtakanna: SSNE, SSNV, Vestfjarðarstofu, Austurbrúar, SASS, SSS og SSV.