Fara í efni

Starfsmaður óskast tímabundið í Íþróttamiðstöðina Heiðarborg

Laust er til umsóknar starf starfsmanns við Íþróttamiðstöðina Heiðarborg á opnunartíma fyrir almenning. Um er að ræða undirbúning, frágang og umsjón með íþróttahúsi og sundlaug, móttöku gesta og gæslu við sundlaug. Vinnutími er frá kl. 15:45 – 21:15 mánudaga til fimmtudaga og á laugardögum frá kl. 9:45 – 15:15.

Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. 

Hæfniskröfur:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Viðkomandi þarf að sækja réttindanámskeið fyrir sundlaugarstarfsmenn hafi hann ekki tilskilin réttindi nú þegar.  
  • Sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Starfið hentar báðum kynjum.

Nánari upplýsingar um starfið má fá hjá skólastjóra, Sigríði Láru Guðmundsdóttur, í síma 433 8525 eða gsm 899 5156. Einnig má senda fyrirspurn á netfang skólastjóra: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is

Umsóknarfrestur er til og með 16. ágúst næstkomandi og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til skólastjóra á netfangið: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is
Um tímabundna ráðningu er að ræða frá og með 26. ágúst 2019 til og með 31. maí 2020, með möguleika á áframhaldandi ráðningu.