Fara í efni

Starfsmaður óskast í afleysingar

Starfsmaður óskast í afleysingar við íþróttamiðstöðina í Heiðarborg og í Félagsmiðstöðina 301.  Mikilvægt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með íþróttahúsi
  • Aðstoð við börn
  • Klefavarsla
  • Þrif
  • Umsjón með félagsstarfi unglinga

Hæfniskröfur:

  • Hafa náð 18 ára aldri
  • Standast hæfnispróf sundstaða
  • Þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 18. nóvember 2021.

Nánari upplýsingar veitir Ása Líndal Hinriksdóttir, fristunda- og menningarfulltrúi í síma 842 5585. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is.  Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá.