Fara í efni

Starfsmaður óskast í félagsstarf aldraðra í Hvalfjarðarsveit

Starfsmann vantar frá september 2019 - maí 2020 til vinnu í félagsstarfi aldraðra í Hvalfjarðarsveit. Um er að ræða Opið hús í Miðgarði sem haldið er tvisvar sinnum í mánuði. Helstu verkefni eru að skipuleggja og halda utan um félagsstarfið sem fram fer i Opnu húsi ásamt umsjónarmanni félagsstarfsins. Starfið hentar jafnt konum sem körlum.

Reynsla í vinnu með öldruðum er æskileg og nauðsynlegt er að hafa bíl til umráða. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal, félagsmála- og frístundafulltrúi Hvalfjarðarsveitar í síma 433 8500 eða á netfanginu fristund@hvalfjardarsveit.is

Umsóknareyðublað má nálgast hér

Umsóknarfrestur er til og með 2. september 2019.