Fara í efni

Starfsleyfi - malarnáma Stóra-Fellsöxl

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands auglýsir drög að starfsleyfi fyrir malarnámu að Stóru-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit.

Umsókn um starfsleyfi fyrir malarnámu að Stóru-Fellsöxl Hvalfjarðarsveit barst þann 4. apríl 2023 ásamt fylgigögnum. Umsækjandi fyrir hönd Þróttar ehf; kt: 420369-3879, er Fannar Freyr Helgason.

Í umsókn kemur fram: " Malarnám í Stóru-Fellsöxl í Hvalfjarðarsveit. Áætlað er að vinna efni á bilinu 10.000 - 50.000 m3 á ári".
Með umsókn fylgdi greinargerð og kort af núverandi efnistökusvæði og framtíðarsvæði.

Leyfi fyrir malarnámur er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998 og ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit.

Starfsleyfisskilyrði fyrir starfsemina ber að auglýsa í minnst 4 vikur skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018, um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnareftirlit, X-viðauki grein 2.6.

Starfsleyfi mun byggja í grunnatriðum á starfsleyfisskilyrðum sem sjá má á vef Umhverfisstofnunar ásamt ákvæðum frá Heilbrigðiseftirliti Vesturlands. Starfsleyfisskilyrði fyrir efnistöku.pdf (ust.is)

Athugasemdir skulu berast á eftirlit@hev.is fyrir 10. maí 2023.

Hér er má finna gögn vegna umsóknarinnar. Stóra-Fellsöxl umsókn og greinargerð