Fara í efni

Starfsleyfi - kjúklingaeldi Fögrubrekku

Heilbrigðiseftirlit Vesturlands  auglýsir drög að endurnýjuðu starfsleyfi fyrir starfsemi Reykjabúsins ehf. á kjúklingaeldi sem staðsett er á Fögrubrekku í Hvalfjarðarsveit.

Umsókn barst þann 14. mars 2023. Umsækjandi er Reykjabúið ehf, kennitala: 581187-2549. Umsækjandi fyrir hönd fyrirtækisins er Jón Magnús Jónsson.
Samkvæmt upplýsingum á umsókn er sótt um kjúklingaeldi : " landbúnaður, engar breytingar á rekstri um all langt skeið.
Bú undir 40.000 stæðum ".

Núgildandi leyfi gildir frá 5. maí 2021 til 5. maí 2023. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands stefnir á að gefa út leyfi til 12 ára í samræmi við landnotkun á landbúnaðarsvæði Fögrubrekku í Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2020 -2032.

Leyfið er gefið út skv. lögum um hollustuhætti og mengungarvarna nr. 7/1998.Starfsleyfisskilyrði munu byggja á efirfarandi almennum starfsleyfisskilyrðum fyrir alifugla- og svínabú : Starfsleyfisskilyrði fyrir alifugla- og svínabú -

Tillögu að starfsleyfi ber að auglýsa í 4 vikur á heimasíðu Heilbrigðiseftirlitsins, skv. ákvæðum reglugerðar nr. 550/2018 um losun frá atvinnurekstri og mengunarvarnaeftirlit.
Um starfsemina gildir einnig reglugerð nr. 520/2015 um eldishús alifugla, loðdýra og svína.

Athugasemdir skulu berast á netfangið eftirlit@hev.is fyrir 13. apríl 2023.

Tilkynning af vef Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.