Fara í efni

Starfsfólk óskast til starfa við íþróttamiðstöðina Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit

Starfsfólk óskast í 75%  starf við íþróttamiðstöðina í Heiðarborg frá 17. ágúst 2020. Vinnutími er frá kl. 08:00 - 14.00 alla virka daga. Um er að ræða tvö störf fyrir bæði kynin.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með íþróttahúsi
  • Aðstoð við börn
  • Klefavarsla
  • Þrif

Hæfniskröfur:

  • Hafa náð 18 ára aldri
  • Standast hæfnispróf sundstaða
  • Þjónustulund og lipurð í samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af sambærilegu starfi kostur

 Umsóknarfrestur er til 27. júlí 2020

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Ása Líndal Hinriksdóttir í síma 842 5585. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsóknir á netfangið fristund@hvalfjardarsveit.is.  Með umsókn þarf að fylgja starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfið.