Fara í efni

Starfsfólk óskast í stuðningsþjónustu

Velferðar – og fræðsludeild Hvalfjarðarsveitar auglýsir eftir fólki til starfa í stuðningsþjónustu (liðveislu). Við leitum að einstaklingum sem náð hafa 18 ára aldri, óháð kyni.

Um er að ræða hlutastörf, yfirleitt seinnipart dags og/eða um helgar og er því tilvalið sem aukastarf með námi eða öðru starfi. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og VFLA/Stéttarfélagi Vesturlands.

Stuðningsþjónustan sem umræðir hefur það markmið að veita börnum persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar að því að rjúfa félagslega einangrun til dæmis með því að njóta menningarlífs, félagslífs og tómstunda. Stuðningurinn felst meðal annars í að auka samfélagsþátttöku, takast á við áskoranir og styrkja sjálfsmynd sína. Stuðningurinn er sniðinn að þörfum og óskum barnsins með velferð þess að leiðarljósi og getur verið veittur innan og utan heimilis.

Greitt er fyrir akstur samkvæmt stuðningsþjónustusamningi hvers og eins.

Umsókn um starf má finna á þjónustugátt Hvalfjarðarsveitar

Nánari upplýsingar veitir Freyja Þöll Smáradóttir, deildarstjóri velferðar og fræðsludeildar í síma 433-8500 eða á netfanginu
felagsmalastjori@hvalfjardarsveit.is