Starfsfólk í íþrótta- og samfélagsmiðstöðina Heiðarborg
Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir starfsfólki til starfa í íþrótta- og samfélagsmiðstöðinni Heiðarborg.
Starfsfólk íþrótta- og samfélagsmiðstöðvar sinnir eftirliti, vörslu, umhirðu og þjónustu við gesti. Starfsfólk ber ábyrgð á að húsnæði, aðstaða og umhverfi sé snyrtilegt og öruggt fyrir notendur mannvirkisins. Starfsfólk sækir námskeið í skyndihjálp og björgun sem hluti af starfinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta og afgreiðsla gesta.
- Eftirlit með sundlaug, heitum pottum, íþróttasal, þreksal og öðrum svæðum Heiðarborgar.
- Að stuðla að öryggi gesta og tryggja að reglum um notkun aðstöðunnar sé fylgt.
- Móttaka og aðstoð við nemendur, kennara og aðra hópa sem nýta aðstöðuna.
- Dagleg þrif og umhirða húsnæðis, búningsklefa, sundlaugarsvæðis og útisvæða.
- Önnur verkefni sem falla að starfsemi Heiðarborgar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hreint sakavottorð (skv. 10. grein Æskulýðslaga)
- Skilyrði fyrir ráðningu er að starfsmaður standist hæfnispróf sundstaða.
- Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur.
- Góð færni í íslensku.
- Stundvísi og áreiðanleiki.
- Snyrtimennska og góð umgengni.
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
Nánari upplýsingar
- Unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum.
- Um er að ræða mismunandi stöðugildi.
- Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst.
- Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
- Öll kyn eru hvött til að sækja um.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Freyja Þöll Smáradóttir, deildarstjóri Velferðar- og fræðsludeildar, felagsmalastjori@hvalfjardarsveit.is, eða í síma 433-8500.
Umsóknarfrestur er til og með 4. ágúst nk. og skal senda umsóknir inn í gegnum Alfreð Starfsfólk í íþrótta- og samfélagsmiðstöðina Heiðarborg | Hvalfjarðarsveit
Öllum umsóknum verður svarað.