Fara í efni

Starfsemi í gildandi takmörkunum samkomubanns

Frá 24. febrúar 2021 verður dregið úr samkomutakmörkunum með gildistíma til 17. mars 2021.  Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns í stað 20 áður, almenn nálægðarmörk verða 2 metrar og þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra milli einstaklinga er grímuskylda.  Andlitsgríma þarf að hylja bæði nef og munn. 

Börn fædd 2005 og síðar eru undanþegin fjöldatakmörkun, nálægðarmörkum og  grímuskyldu.  

Á meðan ofangreindar reglur gilda verður starfsemi stofnana Hvalfjarðarsveitar með eftirfarandi hætti:   

Starfsemi í Heiðarskóla í gildandi takmörkunum á skólastarfi, gildir frá 24. febrúar – 30. apríl.

  • 1 metra nálægðartakmarkanir á milli starfsfólks, sé það ekki unnt ber að nota andlitsgrímur.
  • Ekki fleiri en 50 fullorðnir í hverju rými.
  • Ekki fleiri en 150 nemendur í hverju rými innan dyra.
  • Foreldrar, aðstandendur og aðrir skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingu og gæta að sóttvörnum og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín og gagnvart starfsfólki.

 Starfsemi í Skýjaborg í gildandi takmörkunum á skólastarfi, gildir frá 24. febrúar – 30. apríl:

  • 1 metra nálægðartakmarkanir á milli starfsfólks.
  • Ekki fleiri en 50 fullorðnir í hverju rými.
  • Foreldrar, aðstandendur og aðrir skulu sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabyggingu og gæta að sóttvörnum og skulu bera andlitsgrímur í samræmi við 2. mgr. 4. gr. reglugerðar um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Þeir skulu gæta að minnst 1 metra nálægðartakmörkun jafnt milli sín og gagnvart starfsfólki.

 Heiðarborg, íþróttahús og sundlaug:

Heimilt er að hafa 75% af leyfilegum hámarksfjölda í Heiðarborg

  • Opið fyrir íþróttastarf
  • Sundlaug er opin fyrir almenning, með takmörkunum
  • Þrek og íþróttasalur opið með takmörkunum

 Félagsmiðstöð 301:

  • Hefðbundið félagsstarf, opið fyrir miðstig og unglingastig

 Heimilisþjónusta:

  • Óbreytt fyrirkomulag og þjónusta

 Félagsstarf aldraðra:

  • Sundleikfimi byrjar að nýju, nánari upplýsingar innan skamms
  • Opið hús í Miðgarði að nýju, verður auglýst bráðlega

 Stjórnsýsluhús:

  • Hefðbundin starfsemi og opnunartími

 Félagsheimili:

  • Óbreytt rekstrarfyrirkomulag

 Stöndum saman og sinnum sóttvörnum, hugum hvert og eitt að eigin smitvörnum en mikilvægt er að þvo hendur reglulega, spritta, virða nálægðartakmarkanir og halda sig heima verði einkenna vart.

Leiki grunur á smiti skal strax hafa samband við heilsugæslu í gegnum síma, við netspjall á www.heilsuvera.is eða við Læknavakt í síma 1700.

Við erum öll almannavarnir og með samhentum aðgerðum erum við sterkari og öflugri.

Munið að fjöldatakmarkanir gilda bæði í opinberu rými og í einkarými (þó ekki um heimilisfólk á heimili sínu).