Fara í efni

Starfsemi í gildandi takmörkunum samkomubanns:

Frá 18. nóvember verður dregið úr samkomutakmörkunum með gildistíma til 1. desember nk.  Almennar fjöldatakmarkanir miðast þó áfram við 10 manns og almenn nálægðarmörk verða áfram 2 metrar og þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra milli einstaklinga er grímuskylda.  Andlitsgríma þarf að hylja bæði nef og munn. 

Börn fædd 2008 og síðar eru undanþegin 2 metra reglu og  grímuskyldu.  

Á meðan ofangreindar reglur gilda verður starfsemi stofnana Hvalfjarðarsveitar með eftirfarandi hætti:   

Heiðarskóli, grunnskóli:

  • Kennsla samkvæmt stundaskrá. Nemendur hólfaðir niður samkvæmt fjöldatakmörkunum innanhúss. Engar fjöldatakmarkanir utandyra
  • Grímuskylda innanhúss hjá nemendum og starfsmönnum í    8. – 10. bekk þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjarlægð, gildir líka í skólabílum hjá nemendum í 8. – 10. bekk. Börn fædd 2008 og síðar eru undanþegin grímuskyldu og fjarlægðarmörkum. Einnig þeir starfsmenn sem með þeim vinna
  • Hefðbundin frístund
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við skólastjóra, ávallt grímuskylda utanaðkomandi aðila
  • Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og þá í samráði við skólastjóra, ávallt grímuskylda
  • Foreldrar og aðstandendur sem eru sjálfir að koma með eða sækja sitt barn skulu ekki koma inn í skólann heldur hringja í síma 433-8525 á skólatíma (8:10 – 13:30) og síma 833-9862 á frístundatíma (13:30 – 16:30 mán - fim). Starfsmenn skólans sjá um að taka á móti börnum við aðalinngang eða fylgja börnum út

 Skýjaborg, leikskóli:

  • Hefðbundið skólastarf
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við leikskólastjóra
  • Tekið er á móti börnum og þau sótt við útidyr. Foreldrar mega ekki koma inn í leikskólann (Gott að banka á glugga á deildum ef starfsmaður er ekki við)
  • 7:30-8:15: Öll börn mæta við aðalútidyr Regnboga
  • 8:15-9:00: Dropabörn mæta við útidyr Dropa
  • 14:00-15:15: Dropabörn sótt við útidyr Dropa
  • 15:15-16:30: Öll börn sótt við aðalútidyr Regnboga
  • Í lok dags eru börnin úti á skólalóð ef aðstæður leyfa
  • Ekki þarf að taka öll útiföt heim á hverjum degi. Gott að fá fötin í góðum pokum sem auðvelt er að ganga um
  • Foreldrar sem ekki geta haldið 2 metra fjarlægð við starfsfólk, þegar komið er með börn og þau sótt, þurfa að hafa andlitsgrímu  

   Heiðarborg, íþróttahús og sundlaug:

  • Opið fyrir íþróttastarf í grunnskólanum
  • Lokað fyrir almenning

Félagsmiðstöð 301:

  • Hefðbundið félagsstarf, opið fyrir miðstig og unglingastig

 Heimaþjónusta:

  • Óbreytt fyrirkomulag og þjónusta

Félagsstarf aldraðra:

  • Sundleikfimi fellur niður um óákveðinn tíma
  • Opnu húsi í Miðgarði frestað um óákveðinn tíma

Stjórnsýsluhús:

  • Hefðbundin starfsemi
  • Óbreyttur opnunartími en biðlað til fólks að koma einungis ef brýn þörf er á
  • Þeir sem eiga erindi eru hvattir til að nýta síma og/eða tölvupóst eins og kostur er

 Félagsheimili:

  • Óbreytt rekstrarfyrirkomulag

Stöndum saman og sinnum sóttvörnum, hugum hvert og eitt að eigin smitvörnum en mikilvægt er að þvo hendur reglulega, spritta, virða nálægðartakmarkanir og halda sig heima verði einkenna vart.

Leiki grunur á smiti skal strax hafa samband við heilsugæslu í gegnum síma, við netspjall á www.heilsuvera.is eða við Læknavakt í síma 1700.

Við erum öll almannavarnir og með samhentum aðgerðum erum við sterkari og öflugri.

Munið að fjöldatakmarkanir gilda bæði í opinberu rými og í einkarými (þó ekki um heimilisfólk á heimili sínu).