Fara í efni

Starfsemi í gildandi takmörkunum samkomubanns:

Frá 25. maí 2021 taka gildi breyttar reglur samkomutakmarkana með gildistíma til 16. júní 2021.  Almennar fjöldatakmarkanir verða 150 manns í stað 50 áður, 2 metra nándarmörk verða áfram meginregla nema á veitingastöðum, sitjandi viðburðum, í skólastarfi og á sund- og baðstöðum þar sem nándarmörkin verða 1 metri.     

Létt er á grímuskyldu og fellur hún m.a. niður í verslunum og á vinnustöðum.  Gerð er krafa um grímu  á sitjandi viðburðum auk þess sem skylt er að bera grímu vegna þjónustu sem krefst mikillar nándar.     

Sem fyrr eru börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir fjölda- og nálægðartakmarkanir. 

Börn í leikskólum, fædd 2015 og síðar eru undanþegin 2 metra reglunni og fjöldatakmörkunum.

Á meðan ofangreindar reglur gilda verður starfsemi stofnana Hvalfjarðarsveitar með eftirfarandi hætti:   

Heiðarskóli, grunnskóli:

  • 1 metra nálægðartakmörk á milli fullorðinna einstaklinga.

 Skýjaborg, leikskóli:

  • 1 metra nálægðartakmörk á milli fullorðinna einstaklinga.

 Heiðarborg, íþróttahús og sundlaug ásamt þreksal:

  • Í Heiðarborg eru nándarmörkin 1 metri. Gætt að sóttvörnum og sameiginleg áhöld sótthreinsuð eftir notkun.
  • Opið fyrir íþróttastarf.
  • Sundlaug er opin fyrir almenning.
  • Þrek, opið, virða þarf 1 metra nálægðarmörk, gestir skulu skráðir fyrirfram og sótthreinsa skal búnað á milli notenda.

 Félagsmiðstöð 301:

  • Hefðbundið félagsstarf

 Heimilisþjónusta:

  • Óbreytt fyrirkomulag og þjónusta

 Félagsstarf aldraðra:

  • Sundleikfimi byrjar í haust
  • Vorferð 2. júní nk.

 Stjórnsýsluhús:

  • Hefðbundin starfsemi, virða þarf 1 metra nálægðarmörk

 Félagsheimili:

  • Óbreytt rekstrarfyrirkomulag

 Stöndum saman og sinnum sóttvörnum, hugum hvert og eitt að eigin smitvörnum en mikilvægt er að þvo hendur reglulega, spritta, virða nálægðartakmarkanir og halda sig heima verði einkenna vart.

Leiki grunur á smiti skal strax hafa samband við heilsugæslu í gegnum síma, við netspjall á www.heilsuvera.is eða við Læknavakt í síma 1700.

Við erum öll almannavarnir og með samhentum aðgerðum erum við sterkari og öflugri.

Munið að fjöldatakmarkanir gilda bæði í opinberu rými og í einkarými (þó ekki um heimilisfólk á heimili sínu).