Fara í efni

Starfsemi í gildandi takmörkunum samkomubanns

Frá 20. október til og með 10. nóvember taka gildi hertari reglur þar sem nálægðarmörk verða 2 metrar í stað 1 metra áður og þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra milli einstaklinga er grímuskylda.  Andlitsgríma þarf að hylja bæði nef og munn. 

Fjöldatakmarkanir miðast áfram við 20 einstaklinga.

Fjöldatakmörkun, almenn nálægðartakmörkun og grímuskylda á ekki við um börn fædd 2005 eða síðar.

Á meðan ofangreindar reglur gilda verður starfsemi stofnana Hvalfjarðarsveitar með eftirfarandi hætti:   

Heiðarskóli, grunnskóli:

  • Hefðbundið skólastarf
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við skólastjóra
  • Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og þá í samráði við skólastjóra.
  • Foreldrar og aðstandendur sem eru sjálfir að koma með eða sækja sitt barn skulu ekki koma inn í skólann heldur hringja í síma 433-8525 á skólatíma (8:10 – 13:30) og síma 833-9862 á frístundatíma (13:30 – 16:30 mán - fim). Starfsmenn skólans sjá um að taka á móti börnum við aðalinngang eða fylgja börnum út.

Skýjaborg, leikskóli:

  • Hefðbundið skólastarf
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við leikskólastjóra
  • Tekið er á móti börnum og þau sótt við útidyr. Foreldrar mega ekki koma inn í leikskólann (Gott að banka á glugga á deildum ef starfsmaður er ekki við).
    •  7:30-8:15: Öll börn mæta við aðalútidyr Regnboga
    •  8:15-9:00: Dropabörn mæta við útidyr Dropa
    • 14:00-15:15: Dropabörn sótt við útidyr Dropa
    • 15:15-16:30: Öll börn sótt við aðalútidyr Regnboga
    • Ekki þarf að taka öll útiföt heim á hverjum degi. Gott að fá fötin í góðum pokum sem auðvelt er að ganga um
    • Í lok dags eru börnin úti á skólalóð ef aðstæður leyfa
    • Foreldrar sem ekki geta haldið 2 metra fjarlægð við starfsfólk, þegar komið er með börn og þau sótt, þurfa að hafa andlitsgrímu. 

 Heiðarborg, íþróttahús og sundlaug:

  • Hefðbundinn opnunartími í sundlaug
  • Fjöldatakmarkanir í sundlaug og búningsklefa
  • Þreksalur og íþróttasalur lokaðir um óákveðinn tíma

Heimilisþjónusta:

  • Óbreytt fyrirkomulag og þjónusta

Félagsstarf aldraðra:

  • Sundleikfimi fellur niður um óákveðinn tíma
  • Opnu húsi í Miðgarði frestað um óákveðinn tíma

Stjórnsýsluhús:

  • Hefðbundin starfsemi
  • Óbreyttur opnunartími en biðlað til fólks að koma einungis ef brýn þörf er á
  • Þeir sem eiga erindi eru hvattir til að nýta síma og/eða tölvupóst eins og kostur er

Félagsheimili:

  • Óbreytt rekstrarfyrirkomulag

 Stöndum saman og sinnum sóttvörnum, hugum hvert og eitt að eigin smitvörnum en mikilvægt er að þvo hendur reglulega, spritta, virða nálægðartakmarkanir og halda sig heima verði einkenna vart.

Leiki grunur á smiti skal strax hafa samband við heilsugæslu í gegnum síma, við netspjall á www.heilsuvera.is eða við Læknavakt í síma 1700.

Við erum öll almannavarnir og með samhentum aðgerðum erum við sterkari og öflugri.