Fara í efni

UPPFÆRT - Starfsemi í gildandi takmörkunum samkomubanns:

Þann 5. október tóku gildi hertari reglur samkomubanns, samhliða yfirlýstu neyðarstigi almannavarna.  Fjöldatakmarkanir miðast við 20 einstaklinga og 1 metra fjarlægð milli einstaklinga

Á meðan ofangreindar reglur gilda verður starfsemi stofnana Hvalfjarðarsveitar með eftirfarandi hætti:   

Heiðarskóli, grunnskóli:

  • Hefðbundið skólastarf
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við skólastjóra
  • Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og þá í samráði við skólastjóra.
  • Foreldrar og aðstandendur sem eru sjálfir að koma með eða sækja sitt barn skulu ekki koma inn í skólann heldur hringja í síma 433-8525 á skólatíma (8:10 – 13:30) og síma 833-9862 á frístundatíma (13:30 – 16:30 mán - fim). Starfsmenn skólans sjá um að taka á móti börnum við aðalinngang eða fylgja börnum út.

Skýjaborg, leikskóli:

  • Hefðbundið skólastarf
  • Utanaðkomandi heimsóknir ekki leyfðar nema í samráði við leikskólastjóra
  • Tekið er á móti börnum og þau sótt við útidyr. Foreldrar mega ekki koma inn í leikskólann (Gott að banka á glugga á deildum ef starfsmaður er ekki við).
    •  7:30-8:15: Öll börn mæta við aðalútidyr Regnboga
    •  8:15-9:00: Dropabörn mæta við útidyr Dropa
    • 14:00-15:15: Dropabörn sótt við útidyr Dropa
    • 15:15-16:30: Öll börn sótt við aðalútidyr Regnboga
    • Ekki þarf að taka öll útiföt heim á hverjum degi. Gott að fá fötin í góðum pokum sem auðvelt er að ganga um
    • Í lok dags eru börnin úti á skólalóð ef aðstæður leyfa

 Heiðarborg, íþróttahús og sundlaug:

  • Hefðbundinn opnunartími í sundlaug
  • Fjöldatakmarkanir í sundlaug og búningsklefa
  • Þreksalur og íþróttasalur lokað um óákveðinn tíma

Heimilisþjónusta:

  • Óbreytt fyrirkomulag og þjónusta

Félagsstarf aldraðra:

  • Sundleikfimi fellur niður um óákveðinn tíma
  • Opnu húsi í Miðgarði frestað um óákveðinn tíma

Stjórnsýsluhús:

  • Hefðbundin starfsemi
  • Óbreyttur opnunartími en biðlað til fólks að koma einungis ef brýn þörf er á
  • Þeir sem eiga erindi eru hvattir til að nýta síma og/eða tölvupóst eins og kostur er

Félagsheimili:

  • Óbreytt rekstrarfyrirkomulag

 Stöndum saman og sinnum sóttvörnum, hugum hvert og eitt að eigin smitvörnum en mikilvægt er að þvo hendur reglulega, spritta, virða nálægðartakmarkanir og halda sig heima verði einkenna vart.

Leiki grunur á smiti skal strax hafa samband við heilsugæslu í gegnum síma, við netspjall á www.heilsuvera.is eða við Læknavakt í síma 1700.

Við erum öll almannavarnir og með samhentum aðgerðum erum við sterkari og öflugri.