Fara í efni

Stafrænt umsóknarferli fyrir fjárhagsaðstoð

Félagsmálastjóri Hvalfjarðarsveitar í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga hefur unnið að breytingum á umsóknarferli fjárhagsaðstoðar með það að markmiði að einfalda ferlið fyrir notendur. Verkefnið er fyrsta skrefið í sameiginlegri vegferð sveitarfélaga í samvinnu við Stafrænt Ísland og nýtingu tæknilegra innviða sem byggðir hafa verið upp hjá ríkinu og innlegg í þá framtíðarsýn að vinna fleiri umsóknarferla sameiginlega á miðlægan stað.

Markmiðið með breytingunum er að einfalda og bæta þjónustu við notendur, fækka skrefum og minnka pappírsumstang og um leið tryggja öryggi við umsýslu umsókna. Sjálfvirk gagnaöflun frá Þjóðskrá og Skattinum einfaldar ferlið fyrir umsækjandann mikið og einnig felst í því mikil hagræðing fyrir starfsfólk. Mikil áhersla var lögð á að ferlið væri hannað út frá þörfum notenda. Umsækjandi þarf aðeins að skrá sig með rafrænum skilríkjum, svara nokkrum spurningum og veita heimild til að sækja gögn. Öll samskipti fara í gegnum umsóknargátt á Ísland.is og er niðurstaða afgreiðslu birt þar.

Frá og með febrúar 2023 verður tekið á móti umsóknum í gegnum https://island.is/

Frekari upplýsingar um stafræna fjárhagsaðstoð má lesa hér: https://stafraen.sveitarfelog.is/verkefni/umsokn-um-fjarhagsadstod/