Fara í efni

Sr. Þráinn Haraldsson kjörinn sóknarprestur

Kjörnefnd Garða- og Hvalfjarðarstrandar-
prestakalls hefur valið sr. Þráin Haraldsson sem sóknarprest úr hópi umsækjenda um prestakallið.

Sr. Þráinn hefur verið starfandi prestur við Garðaprestakall á Akranesi frá árinu 2015 og settur sóknarprestur þar frá því í desember í fyrra og sömuleiðis í hið nýja prestakall, Garða-og Hvalfjarðarstrandarprestakall, frá því í vor.

Sr. Þráinn er fæddur 29. maí 1984 og lauk stúdentsprófi frá Kvennaskólanum í Reykjavík árið 2004; sama ár lauk hann 6. stigi í einsöng frá söngskólanum í Reykjavík. Hann lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 2007, síðar prófi frá Endurmenntun H.Í., í sálgæslu barna og unglinga. Þá stundaði hann nám við Misjonshøgskolen 2014-2015.

Hann var vígður í Dómkirkjunni í Reykjavík til prestsþjónustu í Noregi og gegndi henni þar á árunum 2011-2015.

Sr. Þráinn á fjölbreytilegan feril að baki í kristilegu starfi bæði hér heima og í Noregi.

Kona sr. Þráins er Erna Björk Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur og eiga þau þrjú börn.

Umsóknarfrestur rann út 25. júní s.l.

Biskup Íslands mun skipa í embættið í samræmi við niðurstöður kjörnefndar.