Fara í efni

Sólmyrkvagleraugu fyrir alla íbúa

Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Vesturland 12. ágúst 2026. Um er að ræða sjaldgæfan náttúruatburð sem vekur mikla athygli bæði innanlands og erlendis. Í Hvalfjarðarsveit mun þessi atburður sjást vel víðsvegar í sveitarfélaginu.

Atburðir sem þessir draga jafnan marga að s.s. fræðimenn og áhugafólk. Því má gera ráð fyrir aukinni aðsókn gesta á svæðið. Í rauninni má segja að við þurfum að búa okkur undir fjölda gesta sem við höfum ekki séð áður. Nú þegar er Vesturland „uppselt“ í kringum þennan atburð.

Vegna þessa vill sveitarfélagið koma á framfæri upplýsingum til íbúa, landeigenda og rekstraraðila í Hvalfjarðarsveit.

Sveitarfélagið tekur þátt í samráðsvettvangi Vesturlands vegna almyrkvans og mun leggja megin áherslu á öryggismál í samstarfi við viðbragðsaðila og Vegagerðina. Þjónusta við gesti s.s. gisting, veitingar, salerni o.s.frv. verða á forráði þeirra sem vilja bjóða upp á hana og ber að fara eftir reglum þar um.

Allir íbúar Hvalfjarðarsveitar geta nálgast sólmyrkvagleraugu á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar á opnunartíma. 

Upplýsingabréf þessa efnis hefur verið sent á öll heimili í Hvalfjarðarsveit.

Nánari upplýsingar

Upplýsingasíða stjórnvalda: https://island.is/v/almyrkvi-2026

Upplýsingasíða Ferðamálastofu:  www.ferdamalastofa.is/almyrkvi