Fara í efni

Snjómokstur í Hvalfjarðarsveit 2018-2019

Hvalfjarðarsveit og Vegagerðin eru með samning við Þrótt ehf. vegna snjómoksturs og hálkueyðingar í Hvalfjarðarsveit, til vorsins 2019. Fyrirkomulagið varðandi snjómokstur og hálkueyðingu mun vera eins og síðastliðinn vetur.

 

Allt að fjórum sinnum á almanaksári greiðir Hvalfjarðarsveit fyrir snjómokstur / hálkueyðingu að heimreiðum íbúðarhúsa í dreifbýli þar sem föst búseta er.

Ábúendur skulu panta mokstur / hálkueyðingu með eins sólarhrings fyrirvara svo hægt sé að tryggja snjómokstur / hálkueyðingu eins og óskað er eftir.

Íbúar eldri en 67 ára og örorkulífeyrisþegar, m.v. 75% örorku geta leitað til sveitarfélagsins um mokstur / hálkueyðingu á heimreiðum umfram fjögur skipti. Fyrir slíka þjónustu þarf að greiða 50% af taxta viðkomandi verktaka. 

 

Hvalfjarðarsveit greiðir ekki kostnað vegna snjómoksturs / hálkueyðingar sem til hefur verið stofnað án hennar samþykkis að undanskildu, ef beiðni um mokstur / hálkueyðingu kemur frá lögreglu, slökkviliði, lækni eða sjúkraflutningsmönnum vegna neyðarflutninga, skal þá strax sinna því.

 

Að gefnu tilefni eru íbúar vinsamlegast beðnir um að merkja þá staði þar sem verðmæti eru undir snjó til þess að snjómokstursvélar rekist ekki utan í og valdi tjóni. Verktaki ber ekki ábyrgð á tjóni ef snjómokstursvélar rekast í verðmæti sem eru á kafi í snjó og ekki sýnileg.

 

 

Hægt er að nálgast viðmiðunarreglur varðandi snjómokstur í Hvalfjarðarsveit, inn á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar, hér

 

Hægt er að panta heimreiðamokstur / hálkueyðingu:

-alla virka daga frá kl. 10-15 í síma 433-8500.

-alla daga frá kl. 8-22 í síma 896-5141.

 

Bestu kveðjur

 

Guðný Elíasdóttir

Marteinn Njálsson