Fara í efni

Slökkvitæki til yfirferðar

Dagana 19.10 til 23.10.2020 verður tekið á móti slökkvitækjum til yfirferðar og hleðslu á þeim tækjum sem þörf er á.  Hægt er að koma með þau á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar frá kl. 08:00-15:00.

Eigendur geta sótt slökkvitækin sín þremur virkum dögum eftir að þeir hafa afhent þau á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar frá kl. 08:00-15:00.

Aðeins þau íbúðarhúsnæði sem eru skráð með fasta búsetu geta nýtt sér þessa þjónustu.  Sjá nánar í dreifibréfi sem sent hefur verið út.