Fara í efni

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar aðstoðar í Grindavík

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar hefur mannað vaktir í þrjá daga í Grindavík með öðrum viðbragðsaðilum víða af landinu. Síðastliðinn laugardag fór slökkviliðið í sína þriðju ferð á svæðið að veita aðstoð.

Þau verkefni sem Slökkviliði hefur sinnt á svæðinu eru t.d verðmætabjörgun af heimilum fólks og  hjá fyrirtækjum ásamt því að sinna vakt slökkviliðs á svæðinu.

Sigurður Þór Elísson varðstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar sagði það aldrei hafa verið neina spurningu þegar kallið kom um aðstoð.  Við erum öll almannavarnir.

Við fögnum óeigingjörnu og mikilvægu starfi slökkviliðsins okkar og sendum áfram okkar bestu kveðjur til Grindavíkur.