Skýjaborg - nýr leikskóli
22. apríl 2026
Hönnun nýs leikskóla Skýjaborgar gengur vel.
Aðalhönnuður er Andrúm arkitektar, um lóðahönnun sjá Hornsteinar arkitektar og um verkfræðihönnun, verklýsingar og útboðsgögn sér Efla verkfræðistofa.
Aðkoma að nýjum leikskóla verður um götuna Innrimel, sem verður framlengd meðfram Vinavelli.
Stefnt er að því að auglýsa útboð vegna byggingu nýs leikskóla í maí 2026 og er gert ráð fyrir að verktími hefjist í ágúst 2026 með áætluðum verklokum seinni hluta árs 2028.