Skýjaborg - Leikskóli
02. september 2026
Hvalfjarðarsveit óskar eftir tilboðum í byggingu nýs leikskóla, Skýjaborg, í Hvalfjarðarsveit.
Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu byggingar og fullnaðarfrágangi að utan og innanverðu ásamt lóðafrágangi.
Helstu magntölur:
- Uppgröftur 1.826 m³
- Fyllingar 1.576 m³
- Steypumót 894 m²
- Járnbending 24.899 kg
- Steinsteypa 329 m³
- Forsteyptar einingar 2.485 m²
- Gluggar og glerveggir 25 stk.
- Útihurðir 10 stk.
- Léttir innveggir 155 m²
Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef COWI á vefslóðinni: https://mannvit.ajoursystem.net/ frá kl. 17:00 þann 1. september 2026.
Tilboðum skal skilað með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef COWI eigi síðar en kl. 15:00 þann 6. október 2026. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar tilboði hefur verið skilað á útboðsvefinn. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.
Umhverfis- og skipulagsdeild Hvalfjarðarsveitar