Skýjaborg auglýsir eftir leikskólakennara til starfa
Leikskólinn Skýjaborg auglýsir eftir kennurum til starfa frá 5. ágúst 2025.
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi, Hvalfjarðarsveit með allt að 40 börn. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.
Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara eða leiðbeinenda í leikskóla
- Vinna í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf til kennslu*
- Reynsla af vinnu með börnum
- Góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
*Ef ekki fást leikskólakennarar verður horft til menntunar og reynslu.
Hlunnindi í starfi
- 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
- Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.
- 6 skipulagsdagar á ári.
- Veittur er styrkur til náms í leikskólakennaranámi.
Umsóknarfrestur til og með 29. maí 2025. Um er að ræða 100% stöður og eru þær lausar frá 5. ágúst 2025.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 / 8925510 eða með því að senda fyrirspurn á eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Launakjör er samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfs skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.