Fara í efni

Skýjaborg auglýsir eftir deildarstjóra

Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.

Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.

Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.
  • Sér um foreldrasamstarf á deildinni.
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
  • Önnur deildin er með börn á aldrinum 1-3 ára og hin deildin er með börn á aldrinum 3-6 ára. Deildarstjóri er ekki ráðin við aðra hvora deildina, heldur gæti starfið flust á milli deilda.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu*
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Góðir skipulagshæfileikar
  • Góð tölvukunnátta

*Ef ekki fæst til starfa leikskólakennari (með leyfisbréf til kennslu) verður horft til menntunar og reynslu.

Hlunnindi í starfi

  • 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
  • Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.

Umsóknarfrestur til og með 17. júní 2026. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er staðan laus frá 10. ágúst 2025.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 / 8925510 eða með því að senda fyrirspurn á
eyrun@hvalfjardarsveit.is.

Launakjör er samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfs skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.