Skólastjóri Heiðarskóla kvaddur
Þann 5. júní sl. var Sigríður Lára Guðmundsdóttir heiðruð með þakklætisvotti í tilefni af tímamótum á starfsferli sínum við Heiðarskóla.
Sigga Lára hefur starfað við Heiðarskóla allt frá árinu 1992 og á þeim tíma verið ómetanlegur hluti af skólasamfélaginu. Í gegnum árin hefur hún fylgt heilu kynslóðunum í gegnum skólagöngu sína, stutt nemendur og fjölskyldur þeirra, leiðbeint samstarfsfólki og lagt ríkan þátt í uppbyggingu og þróun skólans.
Við þetta tækifæri afhenti Helga Harðardóttir, fráfarandi formaður Velferðar- og fræðslunefndar, Siggu Láru þakklætisvott fyrir hönd Hvalfjarðarsveitar. Í ávarpi var henni þakkað fyrir fagmennsku, yfirvegun og hlýju í störfum sínum, sem og þá leiðsögn, umhyggju og elju sem einkennt hafa störf hennar í þágu skólasamfélagsins um áratugaskeið.
Hvalfjarðarsveit þakkar Siggu Láru innilega fyrir farsælt samstarf og ómetanlegt framlag til Heiðarskóla og samfélagsins og óskar henni velfarnaðar á nýjum og verðskulduðum kafla lífsins.