Skólaakstur í Hvalfjarðarsveit
23. september 2026
Þann 8. júlí 2026 lauk útboðsferli vegna skólaaksturs, verktími er frá hausti 2026 til vors 2031.
Útboðið var unnið í samstarfi við Fjársýslu ríkisins.
Í kjölfarið var gengið til samninga við Hópferðabíla Reynis Jóhannssonar ehf sem aka munu þrjár leiðir og Ben og félaga ehf sem aka munu tvær leiðir.
Sveitarfélagið þakkar Skagaverki ehf farsæla og góða þjónustu í skólaakstri undanfarin ár og býður nýja verktaka velkomna til starfa.